01Umhverfisvæn
Gjaldskil léttir á kolefnisfótspori viðskiptavina sinna. Við notum rafrænar birtingar til þess að afhenda greiðendum innheimtuerindi, þar sem því verður komið við. Þessi nálgun kemur í stað þess að prenta, pakka og póstleggja allt að sex bréf, vegna hverrar og einnar bankakröfu.
02Skilvirk
Gjaldskil getur birt greiðendum innheimtuerindi og áskoranir í rauntíma, með rafrænni afhendingu. Greiðandinn fær þá þann frest sem honum ber að fá. Það tapast enginn tími við prentun, pökkun og póstburð. Innheimtumálum viðskiptavina Gjaldskila er því sinnt hraðar en hingað til hefur þekkst.
03Traust
Gjaldskil er eitt reynslumesta innheimtufélag landsins, sem rekur sögu sína aftur til ársins 1986. Félagið kappkostar að bjóða það allra besta og nýjasta í innheimtumálum, hugbúnaði og þjónustu við viðskiptavini. Gjaldskil er í eigu lögmannsstofanna LEX og Legalis, Arctica Eignarhaldsfélags og framkvæmdastjóra félagsins.